unastigsdottir.com

unastigsdottir.com Einstakir skartgripir síðan 2012 Eco friendly packaging and practices

Ég er svo skotin í þeirri hugmynd að skoða þessa hönnun aðeins meira. Gera ný blæbrigði af þessum festum sem eru allar s...
02/06/2026

Ég er svo skotin í þeirri hugmynd að skoða þessa hönnun aðeins meira. Gera ný blæbrigði af þessum festum sem eru allar seldar.

Hvað segið þið? Er áhugi fyrir því að sjá hvað kemur útúr þeirri gleði að skapa með ferskvatnsperlum og hafa þær svona þrefaldar?

Endilega látið mig vita, stundum líður mér eins og ég sé ein í heiminum hérna í sveitinni 🥰

02/06/2026

Það má vera smá húmor er það ekki? Þetta myndband gerði ég þegar mér fannst ennþá mjög vandræðalegt að tala um sjalfa mig, karakter sköpun kom mér til bjargar. Það sem ég er að gera í myndbandinu er ferskvatnsperlufesti sem ég ætla að bjóða aftur uppá. Ég á svo ótrúlega fallegar perlur sem vilja endilega verða að skartgripum og þessi tegund, þreföld með mörgum blæbrigðum af þessum undraverðum efnivið er algjör klassík sem þarf að fá að gleðja fleiri. Það væri gaman að bjóða þessum tveim týpum aftur í heimsókn á vinnustofuna og sjá hvað kemur útur smá spuna núna þegar mér finnst ekkert eðlilegra en að upplýsa alla um hvað ég er að skapa og hvað ég stend fyrir sem listamaður. Það þarf að vera gaman og efniviðurinn þarf að vera hágæða ♥️

Þá er júní bara mættur ♥️ Sumarið á það til að rjúka hjá og það er svo mikilvægt að njóta þess.  Hér hef ég notað mikið ...
01/06/2026

Þá er júní bara mættur ♥️ Sumarið á það til að rjúka hjá og það er svo mikilvægt að njóta þess.

Hér hef ég notað mikið af ferskvatnsperlum til að skapa léttar og sumarlegar festar, hver annari fallegri þótt ég segi sjálf frá 🥰

Njótið Sunnudagsins kæru vinir ♥️
31/05/2026

Njótið Sunnudagsins kæru vinir ♥️

Það er mikið verið að pakka og skipuleggja ferðalög hér á bæ þannig að ég ákvað að þykjast vera að fara einhvert og sjá ...
30/05/2026

Það er mikið verið að pakka og skipuleggja ferðalög hér á bæ þannig að ég ákvað að þykjast vera að fara einhvert og sjá hvað mætti alls ekki vanta í ferðatöskuna mína. Augljóslega festar frá mér fyrir öll tækifæri 😊
Það er eitthvað magnað sem gerist þegar áferðir mætast♥️

Ég erfði tölusafn mömmu minnar en ólíkt öðrum söfum þá eru þetta tölur af lager sem voru til sölu í búð afa hennar. Hann...
30/05/2026

Ég erfði tölusafn mömmu minnar en ólíkt öðrum söfum þá eru þetta tölur af lager sem voru til sölu í búð afa hennar. Hann rak saumavöruverslun á horni Klappastígs og Njálsgötu. Það sem gerir þær ennþá sérstakari er að þær eru ófáanlegar í dag og hafa ferðast oft á milli landa, þess vegna kalla ég þær heimshornaflakkaratölurnar 🥰

Þessi svarta skartar u.þ.b 80 gráum Lucide tölum með skelplötu áferð. Lucide er fínni plast tegund sem var mikið notað 1970.
12.800.-

Þessi hvíta er með alvöru skelplötu, Cowrie skeljum og stál formum sem mér finnst vera ákkurat mitt á milli tölu og skeljar.
13.600.-

Ykkur er velkomið að vera í bandi og fá þessar dásemdir sendar heim að dyrum ykkur að kostnaðarlausu ♥️

WORK IT! Ég hef æft eitt mjög mikið eftir að ég fór að selja skart á netinu og það er að smella af myndum af sjálfri mér...
29/05/2026

WORK IT!

Ég hef æft eitt mjög mikið eftir að ég fór að selja skart á netinu og það er að smella af myndum af sjálfri mér. Ég er þakklát fyrir það því ég var alveg hætt því. Núna er ég einhvernvegin búin að kynnast sjálfri mér uppá nýtt í gegnum þetta og ekki nærri þvi jafn hörð við sjálfa mig.

Prinsessu festar 🌸♥️Klassísk sídd er ekki klassík að ástæðulausu. Þetta er lengdin sem flestir elska því hún er svo klæð...
29/05/2026

Prinsessu festar 🌸♥️

Klassísk sídd er ekki klassík að ástæðulausu.

Þetta er lengdin sem flestir elska því hún er svo klæðileg og passar við allt. Þessar festar eru allar í þessari "Princess" lengd og í dag hef ég fundið til svolítið fíngerðari tegundir.

Svo er líka gaman að blanda þeim við aðrar festar sem maður á eða kaupa nokkrar og getað blandað að vild ♥️🌸

Höfum smá silfur þema í dag ♥️ Ég hef notað meira af sterling silfur festingum en mig minnti. Ef ykkur langar að skoða þ...
28/05/2026

Höfum smá silfur þema í dag ♥️
Ég hef notað meira af sterling silfur festingum en mig minnti. Ef ykkur langar að skoða þá er hérna safn af þeim. Svo elska ég að nota silfurvír í alskonar smáatriði, best er náttúrlega að sitja niðri við ánna Orta og dunda í ró og næði þótt ég sé reglulega spurt hvort ég ættli ekki að kíkja ofaní. "Þegar gráðurnar eru ornar 40 þá geri ég það" er svarið 🥰

Indirizzo

San Valentino In Abruzzo Citeriore

Sito Web

Notifiche

Lasciando la tua email puoi essere il primo a sapere quando unastigsdottir.com pubblica notizie e promozioni. Il tuo indirizzo email non verrà utilizzato per nessun altro scopo e potrai annullare l'iscrizione in qualsiasi momento.

Contatta L'azienda

Invia un messaggio a unastigsdottir.com:

Condividi